Algengar spurningar

  • Straumnet er löggiltur rafverktaki í Reykjavík sem þjónustar allt höfuðborgarsvæðið. Við tökum að okkur almenna raflögn en sérhæfum okkur sérstaklega í tæknilegum úrlausnum fyrir heimili og fyrirtæki. Við bjóðum upp á heildarlausnir í uppsetningu á öryggiskerfum, myndavélakerfum, aðgangsstýringum og öflugum netkerfum, ásamt hönnun og uppsetningu á lýsingu og snjallkerfum.

  • Við erum staðsettir í Reykjavík en tökum að okkur verkefni um allt höfuðborgarsvæðið og nærsvæði (Reykjavík, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður, Mosfellsbær, Seltjarnarnes, Reykjanesið, Selfoss og Akranes). Fyrir stærri verkefni utan þessara svæða er velkomið að hafa samband og kanna möguleikana.

  • Þar sem hvert verkefni er einstakt, hvort sem um er að ræða nýlagnir, breytingar eða uppsetningu á flóknum stjórnkerfum, er erfitt að gefa upp fast verðskrá. Við leggjum hins vegar mikla áherslu á sanngjarna verðlagningu og gegnsæi. Við mælum með að hafa samband, lýsa verkinu og við gerum þér tilboð eða verðáætlun byggða á umfangi verksins. Vönduð vinnubrögð skila sér alltaf í betri endingu og öryggi.

  • Einfaldasta leiðin er að senda okkur línu á straumnet@straumnet.is eða hringja í síma 868-3517. Við förum yfir þarfir þínar, hvort sem þig vantar ráðgjöf vegna lýsingarhönnunar, úttekt á rafmagnstöflu eða uppsetningu á nýju netkerfi, og finnum hentugustu lausnina fyrir þig.

  • Við sameinum hefðbundna rafvirkjun og nútímatækni. Straumnet leggur áherslu á fagmennsku, öryggi og snyrtileg vinnubrögð. Okkar sérstaða liggur í djúpri þekkingu á snjall- og öryggiskerfum sem nútímaheimili og fyrirtæki kalla eftir. Sem löggiltur rafverktaki tryggjum við að allt rafmagn sé unnið samkvæmt ströngustu öryggisstöðlum og reglugerðum.

  • Já, það er okkar sérsvið. Við setjum upp og tengjum fullkomin snjallkerfi sem stýra lýsingu, hita og öryggi. Við höfum mikla reynslu af uppsetningu eftirlitsmyndavéla og netkerfa sem tryggja að tæknin virki hnökralaust. Hvort sem það er fyrir heimili eða atvinnuhúsnæði, þá hönnum við kerfi sem hentar þínum þörfum.